You can't say no to Kristján Ó.
09.03.2009 13:20:54 / kristjano

Sumrinu frestað um sex vikur í Hafnarfirði!

Eins og allir Hafnfirðingar og velunnarar þeirra, ef einhverjir, vita þá er fyrirhugað að loka einu útisundlaug bæjarins frá 1. júní til 10. júlí. Hefur bæjarstjórnin fengið leyfi Dómsmálaráðuneytis í samráði við Almanak Háskóla Íslands að fresta sumrinu um sex vikur í Hafnarfirði, þar sem skólaslit grunnskólanna hafa yfirleitt verið upphaf sumarsins en í stað þess verður það að loknum viðgerðum og bótum á Suðurbæjarlauginni.

Annars var helgin bara mjög góð hjá mér, æfingar alla daga og mikill sviti og allt löðrandi í kynþokka!

Komst líka að því að ég þarf að létta mig um einhver kíló fyrir Norðurlandamótið, en það verður bara gaman :d

Jæja, góðar stundir og ekki gleyma að kjósa í prófkjöri ritstjórnarinnar á föstudaginn n.k. ;)

Kristján Ó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2009 11:06:51 / kristjano

Bókhlöðublogg

Núna er maður staddur í lærdómsvagninum á bókhlöðunni og lætur Metnað og Dugnað draga vagninn áfram, en þeir eru vel hvíldir svo það er um að gera að bretta upp ermarnar og ná settum markmiðum!

Ljóðrænt og flott, áfram ég! Annars er fimmtudagur í dag og er þá ekki tilvalið að gera sér dagamun og kíkja í partý?
Þórlindur og Erla Ósk halda partý á Næsta bar í kvöld, og hefst það klukkan 21:00 og ég geri ráð fyrir góðu partýi, láttu sjá þig lesandi!

Kristjano!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2009 14:27:56 / kristjano

Uppgjör helgarinnar!

Núna er helgin að renna sitt skeið og verða henni gerð góð skil af ritstjórninni og vonandi er þetta liður sem mun festast í sessi hjá nýrri ritstjórn.

Á föstudaginn var opna Reykjarvíkurmótið í fegurð kvenna haldið og vakti það mikla lukku hjá flestum held, ritstjóri missti af keppninni, en óskar keppendum og aðstandendum til hamingju með keppnina. Það hefði samt verið gaman ef Ósk hefði unnið þetta aftur, en Fiðluleikarinn er val að titlinum komin.

Svo á laugardeginum, frídegi afreksíþróttamanna, var ritstjórn síðunnar boðið á bikarúrslitaleik kvenna í handbolta, viðureign milli FH og Stjörnunnar og var þetta mikil skemmtun. FH-liðið frekar ungt og reynslulítið en var, að mati ritstjórnar, betra og skemmtilegra liðið í fyrri hálfleik. En í síðari hálfleik var það reynsla Stjörnustúlkna sem hafði sigurinn. Er það einlægur vilji ritstjórnar að óska Stjörnunni til hamingju með sigurinn, en FH stúlkur eiga engu að síður mikið hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu í vetur, og þær eru miklu sætari en stelpurnar í Stjörnunni - Blákaldur sannleikur!

Svo í dag, sunnudag, er bjórinn - besti vinur baranna, að fagna 20 ára afmæli sínu og er fólk beðið um að votta bjórnum virðingu á sómasamlegan hátt. Mælt er með því að fólk fái sér einn kaldan, í það minnsta. Til dæmis yfir leik Man. Utd. - Tottenham. Sir Alex Ferguson veit hversu marga aðdáendur hann á hérlendis og hefur ritstjórnin sett í sig í samband við sigursæla Skotann og hann lofaði Íslendingum góðri ástæðu til að opna sér bjór yfir leiknum. Hann sagði líka að ekki væri hægt að taka lið alvarlega sem héti eitthvað "Tott-" það er alveg deginum ljósara hvernig svona lið komast á toppinn, sagði sigursæli Skotinn á reiprennandi íslensku.


Ritstjórn Kristjano vonar að lesendur hafi átt góða helgi og að vikan verði þeim góð.
Kristján Ó.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2009 10:12:15 / kristjano

Ný ritstjórn væntanleg!

Undanfarið ár hefur verið afar slæmt hjá þessari fréttamiðlun og svo virðist sem fólkið í landinu hafi fengið nóg.
Um hverja helgi má sjá fólk safnast saman, berja saman pennum og skrifblokkum og heimta nýja ritstjórn. Þeim hefur orðið að ósk sinni, þar sem gamla ritstjórnin hrökklaðist frá og er nú starfræk svokölluð minnihlutaritstjórn, en það er bara tímabundið. Því um miðjan mars mun fara fram prófkjör og ný ritstjórn kjörin í kjölfarið af því til að gegna störfum á meðan það er enn hægt að skrifa um eitthvað.

Síðasti skráningarfrestur í prófkjör ritstjórnarinnar er föstudagurinn 6. mars, en prófkjörið sjálft fer fram þann 13. sama mánaðar.


Góðar stundir!

f.h. minnihlutaritstjórnar Kristjano,
Kristján Ó.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 12:13:07 / kristjano

Þurrkur

Ég veit ekki af hverju, en þegar ég var í sturtu í morgun fór ég að velta fyrir mér sögninni "að þurrka." Var ég að velta því fyrir hvort hún stýrði þolfalli eða þágufalli. Því mér finnst hún geta gert bæði.

Hér finnst mér ég hafa tvö góð dæmi þess efnis:
Ég er vínber, þurrkaðu MIG svo ég verði rúsína!

Þurrkaðu MÉR betur á fótunum þræll, ég vil ekki bleyta sokkana mína!

 

Er bæði rétt, nennir einhver að hjálpa mér með þetta?

 

 

Kristján Ó. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 08:50:55 / kristjano

Það er stutt í þetta!

Stutt í hvað?

Stutt í jól? Stutt í próf?

Jú vissulega er þetta allt rétt.
Það er samt svo skrítið hvernig jólin breytast með aldrinum, þegar maður var lítið skrítið barn var þetta allt svo gaman og dagurinn ótrúlega lengi að líða og maður skildir ekki hvað þetta "jólastress" var sem hrjáði "fullorðna" fólkið.

Núna í dag þegar maður er skilgreindur sem einn af "fullorðna" fólkinu, þá finnur maður meira fyrir þessu stressi, þó maður sé ekki beint á nálum, þá finnur maður aðeins fyrir þessu. Það má líka vera að prófin hafi eitthvað með það að gera, og þegar þeim er lokið þá megar koma jól.

Jólastressið gerir útaf við marga á Íslandi, enda er búið að sýna fram á það að þessi tími árs er versti tími ársins, allavega hérlendis. Lengsti og myrkasti dagur ársins er 21. des, þannig að ég er nokkuð viss um að jólastress og skemmdegisþunglyndi fari ekki vel saman.

En hvað veit ég, ég er að læra lögfræði.

Kristján Ó. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 11:41:25 / kristjano

Varúð! Ekki fyrir fólk með veilt hjarta!

Án gríns!

Undanfarna daga hafa verið æ fleiri fréttir af innflytjendum hér á landi sem settir hafa verið í farbann, vegna einhverja misgjörða og afbrota sem þeir hafa framið. Aðallega eru þetta menn Frá Litháen og Póllandi, sem eru örugglega ágætis staðir og fólkið vonandi ekki svo slæmt.

Ónefndur utanríkisráðherra sagði í samtali við fréttastofu mína að það væri skelfilegt að þetta fólk væri í farbanni, sagðist ráðherra vilja losna við þetta fólk úr landinu og setja það og næstu þrjár kynslóðir þess í komubann til Íslands. Þó myndi vissulega vera réttað yfir þeim hér á landi þeir látnir sæta sína afplánun eða greiða sínar sektir og hvað eina, taka svo poka sinn og snúa aftur heim á leið.

 Hefur þetta lengi verið hugarfóstur ráðherra, sem gæti vel séð þetta gerast á næstu misserum.

 Bændur hafa haft mikið not af Pólskum innflytjendum

Satt eða ósatt?
Kristján Ó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 09:20:16 / kristjano

Aldurstakmark á bókasafn!

Ég veit ekki hvað ykkur finnst, en mér finnst aldrei skemmtilegt að vera beðinn um skilríki þegar ég í miðbæ Reykjavíkur að skemmta mér. Svo er líka nýtilkomið að maður sé beðinn um skilríki í strætó, sem maður skilur svo sem alveg. En í gær þegar ég labbaði inn á Þjóðarbókhlöðuna þá blasti við mér þar til gert skilti og á því stendur: "Athugið að aldurstakmark notenda safnsins er 18 ár" eða eitthvað þvíumlíkt. Svo þegar maður mætti hingað galvaskur í morgun þá þurfti að framsýna skilríki með mynd til að geta valið sér borð.

Ég veit að menntaskólapakk getur verið ansi pirrandi og leiðinlegt hérna á Hlöðunni, en eru þessar aðgerðir of extreme eða eru þær réttmætar?
Hvað finnst ykkur?

Brýtur þetta gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar?

 

Kristján Ó. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 09:59:58 / kristjano

Upprisumessa síðunnar

Jæja, er ekki kominn tími til að hrist smá líf í þessa síðu hérna þegar prófin nálgast?

Vil ég því bjóða ykkur lesendur góðir til Upprisumessu næstkomandi sunnudag í Hafnarfjarðarkirkju.
En þetta verður engin venjuleg messa, ónei, um svokallaða stjörnumessu er að ræða og verður barinn opinn allan tíman á meðan messu stendur og eftir það verður farið í safnaðarheimilið þar sm enn stærri og betri bar bíður okkar. Herlegheitin hefjast stundvíslega klukkan 14:00.

Eins og áður segir verður þetta sunnudaginn 2. desember og verða veitingar í boði nafna míns sem sagði við mig í gær þegar ég stakk upp á þessu "I wouldn't miss it for the world, namy"

Svo sagði hann nafni minn að hann myndi sjá um veitingarnar og passa það að enginn færi þaðan þyrstur. Ef þú ert ennþá að velta fyrir þér hver þessi nafni minn er þá er það ekki Carlos Tevez, heldur liðsfélagi hans Cristiano (Kristján Ó.) Ronaldo.


Nafni minn að gera það sem hann gerir best!

 

Sjáumst hammered á sunnudaginn,
Kristján Ó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:51:49 / kristjano

Teiknimyndarisinn Marvel fer í mál við Yoko Ono og Reykjavíkurborg

Teiknimyndarisinn Marvel hefur höfðað mál á hendur Yoko Ono og Reykjavíkurborg vegna brot á höfundarétti. En Marvel-liðum fannst Friðarsúlan sækja um of til Batman-merkisins sem er löngu orðið frægt og hvert mannsbarn ætti að þekkja.

 Yoko Ono vildi ekki tjá sig um málið þegar CNN spurði hana út í þetta, en fréttahaukarnir þar ætluðu að ná tali af borgarstjóra Reykjavíkur, en vissu ekki hvern átti að spurja svo ekkert varð úr því.

 

Fyrsta friðarsúlan í heiminum Yoko er ekki jafn frumleg og margir vilja meina

 

Yoko (Jókó) sagði svo í viðtali við Jay Leno að þetta væri allt grín og markaði þessi súla upphaf uppistandsferils hennar, en hún mun koma fram sem Dyoko (Djókó) Ono.

 

Þangað til næst,
Kristján Ó.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 22:45:49 / kristjano

Undirskriftarsöfnun í þágu almennings!

Í dag var nóg að gera hjá fótspörkurum á Íslandi og fylgismönnum þeirra sem lauk með því að valur náði efsta sætinu og kr komst úr fallsætinu.

Þetta eru tvær mjög slæmar fréttir og ef hægt væri aðð kippa báðum þessum atriðum í lag yrði það gert í síðustu umferðinni.
Það er reyndar ekki svo gott, þar sem valur vinnur hk eftir eina vik og fylkir vinnur kr á sama tíma.
Eru formenn þessara félaga að skora á fh-inga að tapa leiknum við víking viljandi, og með því fella kr úr efstu deild karla í fótsparki.

Ef þú vilt skora á fh að tapa leiknum fyrir víkingum skaltu skrifa nafnið þitt hér fyrir neðan í athugasemdir og á fimmtudaginn næsta mun stjórnarformaður ía taka saman þann lista, ásamt öðrum svipuðum listum sem verða á víð og dreif um netið og senda á stjórn fótsparksdeildar fimleikafélagsins.

 

Haukar - kr á Ásvöllum á næsta ári?

Ég mæti þangað!
Kristján Ó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 17:59:39 / kristjano

Opnunartími skemmtistaða miðbæjarins breytist um næstu mánaðamót!

Frá og með 1. október n.k. munu skemmtistaðir í miðbæ Reykjavíkur vera opnir í samræmi við helgardagskrá RÚV. En þetta gerir Þórhall Gunnarsson, yfirmann dagskrár RÚV einn valdamesta mann landsins.

"Bærinn", svokallaði, hefur þá fjóra opnunartíma til að fara eftir dagskrá RÚV, en það er klukkan 20:00, 22:00, 0:00, 02:00

"Bærinn", svokallaði, er opinn til 20:00 frá Mánudegi til Fimmtudags eins og ný landslög kveða á um. Föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld fara þó eftir því hvernig myndir eru sýndar á RÚV þetta sama kvöld.
Ef kvöldið einkennist af rómantískum fjölskyldumyndum eða svart/hvítum dramamyndum, þá tekur því ekki að fara út, því þár er aðeins opið til 22:00.
Þegar "Bærinn", svokallaði, er opinn til miðnættis eru sýndar kvikmyndir með gamansöfu ívafi eða bara "fokking ógeðslega fyndnar myndir" eins og Þórhallur sagði sjálfur.
Þá er ekkert eftir nema spennu- og hryllingsmyndir, en þegar þær eru dagskrá RÚV er "Bærinn", svokallaði, opinn til 02:00.

Þó eru undantekningar á þessum lögum, en þau eru að ef myndin "Cocktail" með trúarleiðtoganum Tom Cruise í aðalhlutverki er sýnd, er gamli opnunartími "Bæjarins", svokallaða, við lýði, þ.e. til 07:30.

 

Randver Þorláksson, nýr eigandi Hverfisbarsins, sagði ekki ætla taka mark á þessum orðum Þórhalls og fá laganemar við Háskóla Íslands að skemmta sér frameftir nóttu eins og tíðkast enn þann dag í dag.

 

 

Nú er gott að hafa valið rétt!
Hvað valdir þú?


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 10:02:43 / kristjano

Aron Pálmi hefur afskipti af íslenskunni!

Eins og öllum er kunnugt er Aron Pálmi kominn til heimalandsins og stundar nú nám í íslenskufræðum við Háskóla Íslands.

Á þessum stutta tíma sem hann hefur verið hérna hefur hann náð að setja mark sitt á hina íslensku tungu. Honum fannst fallbeyging ýmissa nafna vera svo úrelt að hann kom með breytingatillögur við þá nefnd sem sér um að endurskoða orðabókina.
Það er skemmst frá því að segja að breytingatillögurnar voru samþykktar samhljóða, Aroni til mikillar lukku.

Helstu nafnabreytingar sem Aron fékk í gegn voru breytingar á nöfnunum Pétur og Emil.

Nýja fallbeyging nafnanna er þá svona:
Pétur Emill
Pét Emil
Pétri Emli
Péturs Emils

 

Ég veit ekki með ykkur, en ég ætla að gefa nýju beygingunum séns.
Kristján Ó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 12:57:08 / kristjano

Einar Bárða hættur öllu tengdu tónlist!

Einar Bárðarson, tónlistarmógúll, hefur ákveðið að gefa eftir þrýstingi sem útvarpsstöðin X-ið 97.7 hefur veitt honum.

X-ið náði að safna um 2.400.000 undirskriftum með því að senda útvarpsstöðvum í Bretlandi upplýsingar um að undirskriftarsöfnunin væri í gangi.

Enn er ekki vitað hvað verður um stórsveitirnar Nylon og Luxor, fræðimenn telja að stúlknasveitin Nylon muni geta fengið erlendan umboðsmann, en framtíð Luxor er ekki björt segja helstu veðbankar.

Garðar Thor Cortes er að sögn heimildamanna dottinn í "sukkið" eins og það var orðað, en hann á víst að hafa rakað af sér hárið og skráð sig á meðferðarstofnunina Stuðla í Reykjavík.

 

Kristján Ó. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 18:40:29 / kristjano

Ofdekraðir grunnskólanemar!

Í dag þurfti ég að stússast fyrir karatedeildina og hengdi upp plaköt í grunnskólum Hafnarfjarðar. Þá komst ég að því að ung börn í dag eru ofdekruð þar sem ég sá hvern og einn einasta nemenda grunnskólanna með farsíma og meiri hluti krakkanna í 7. bekk og uppúr voru með fartölvur.

Ekki nóg með það að foreldrarnir dekri þau, þá er einnig boðið uppá þráðlausa nettengingu í skólanum fyrir nemendur. Þá fyrst er virkilega eitthvað að.

Ég get skilið að það sé nettenging í framhalds- og háskólum, en þegar þetta er komið í grunnskólanna er það aðeins og mikið af vitleysu.

 

 

Annars byrjar skólinn hjá mér á mánudaginn og ég hlakka bara til að byrja.

 

Kristján Ó. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20