You can't say no to Kristján Ó.
24.02.2006 17:09:55 / kristjano

Meistarar í annað sinn!

Í dag voru úrlsit blakmótsins haldin hátíðleg í íþróttasal Verzlunarskólans, og mættust þar lið 5-B og 4-T, en um 3. sætið kepptu lið 4-A og 4-R. En liðið sem lenti í 3. sæti er einmitt lið 4-R, liðið sem gjörsamlega rústaði okkur félögum í 5-B, en það kom ekki að sök því við tókum lið 4-T gjörsamlega úr umferð og áttum við B-liðar stórleik í dag. Einnig verð ég að taka einhvern hluta af hrósinu þar sem liðsmenn 4-T forðuðust uppgjafir mínar líkt og holdsveikann mann með fuglaflensu!

5-B hefur látið talsvert til sín taka í keppnum innan skólans og ber þar helst að nefna:

  • Sigur í dodgeballmótinu
  • Einnig erum við komin í 8 liða úrslit Bekeví
  • Og að sjálfsögðu sigurinn í blakmótinu

Vil ég þakka öllum þeim sem komu og studdu við bakið á okkur í dag, það veitti manni aukna orku, ekki það að maður hafi þurft á henni að halda miðað við hvernig 4-T var að spila :P
Og síðast en ekki síst liðinu sjálfu sem kom inn í þetta mót tilbúið að vinna, vissulega byrjaði það ekki vel, en það er orðið "treidmarkið" okkar að tapa fyrsta leiknum í riðlinum og vinna síðan mótið, það er nákvæmlega sömu sögu að segja um Dodgeballmótið.

Menn voru ekki að spara það í hávörninni

Kristján Ó.
-Gefur upp, en gefst ekki upp!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 11:32:53 / kristjano

Klukkan er farin að ganga tólf. Nú verða sagðar ekki-fréttir

Eins og allir Íslendingar, einhverjir Norðmenn og nokkrir Finnar vita þá var úrslitakvöld undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva haldin í leynilegu fylgsni Ríkistútvarpsins úti á Granda.

Fólk réðst inn á heimili mitt, meiri hlutinn fólk sem ég hef aldrei séð framan í áður, sem segir manni það að maður verður að fara finna nýja stellingu :P
En þetta fólk var alveg ágætt, allavega eftir kippu af bjór og nokkur skot, þá fannst mér þetta bara fínasta fólk, enda orðinn frekar ölkenndur undir lok kvöldsins, en það er önnur saga.

Það komu sér allir fyrir í sjónvarpsholinu heima og gláptu úr sér allt vit, enda ætlaði allt um koll að keyra þegar Leifur Eiríksson söng bakraddir í einu laginu og hoppaði svo fram af píanóinu. Sumir voru nú á þeirri skoðun að hann mætti hoppa fram af einhverju hærra en píanói og þá myndi hann breika í milljón búta.

Svo má ekki gleyma öðlingnum Rúdólfi, betur þekktur sem Rúddi. En hann kemur ekki á nokkurn hátt nálægt stóra fíkniefnamálinu. Hann var bara að dansa og gerði það af mikilli færni, það var bara hinn dansarinn sem klúðraði þessu fyrir hann, alltaf á eftir Rúddanum.

Svo komu glamúrgellurnar Helga Björnsdóttir og Anna Kristín Eyjós-kona og dönsuðu suðrænan og sexý dans. Hins vegar var flutningur lagsins, eða sviðsframkoma flytjandans ekki upp á marga fiska, hún var meira bara upp á fisk, ef svo má að orði komast.

Svo var komið að atriðið sem allir biðu spenntir eftir, og þá er ekki að tala um Birgittu Haukdal á mini-súlunni eða homman-í-fjólubláu-skyrtunni sem var svo ekki í fjólubláu skyrtunni sinni. Ef búningurinn hans var slæmur í undankeppninni þá veit ég ekki hvað hann var að pæla með þessum klæðnaði, það var bara eins og hann hefði gleymt keppninni og rokið af stað heiman frá sér þegar hann sá að keppnin var byrjuð.


Hann hefði svo sem getað haldið sig heima, hann kom strax á eftir Silvíu Nótt sem gjörsamlega rokkaði kofann í klessu. Sigga Beinteins stóð líka fyrir sínu, en hún hefði getað unnið keppnina upp á sitt einsdæmi með þessari hárgreiðslu, en þetta var geðveikt. Þegar þær skvísur stigu á stokk var hækkað hressilega í heimabíóinu, takk Snorri, og allir störðu á kynþokkan sem sprangaði þarna um á sviðinu.

Svo þegar kosningin var búin komu allir sér aftur fyrir framan imbann og biðu með örvæntingu eftir úrslitum. Og af hverju er fólkið sem lenti í öðru og þriðja sæti að fagna?? "Jess, ég fer ekki til Aþenu að skíta uppá bak!!! Ég verð þá bara á Hverfis með öllum hinum skinkunum"

En úrslitin komu öllum á óvart, enda var þetta mjög tæpt og spennandi að fylgjast með þessu. Ég meina, það munaði nú ekki nema FJÖRTÍUÞÚSUND STIGUM á fyrsta og öðru sæti, sem er eiginlega ekki neitt, bara ráðlagður dagskammtur af hitaeiningum.

Vil ég þá bara segja Til hamingju Ísland og áfram Silvía!


Sjitt hvað Silvía er fokking heit!

Þetta er Haukur Hauksson
-ekki fréttamaður


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 17:08:41 / kristjano

Þjóðverjinn minn er Tyrki!

Já, þú last rétt!

En þannig er mál með vexti að það eru að koma nemendur frá þýskum skóla hingað til lands í lok mánaðarins og var lítill áhugi hjá 4. bekkingum að fá þá inn á sitt heimili, því var leitað í 5. bekk og engan venjulegan 5. bekk. Þetta er bekkurinn 5-B, sem ég er einmitt í, ég skráði mig þá samviskusamlega á einhvern lista, því eftir heimsókn Þjóðverjanna förum við út til Hamborgar, það verður reyndar ekki fyrr en í haust, en ferðin er á 10.000 krónur og því getur maður ekki hafnað.

En gæjinn sem gistir hjá mér á tyrkneska foreldra en var alinn upp í Þýskalandi. Hann heitir Ilker Disli, en hann er kallaðir Ille. Hann vinnur sem plötusnúður á einhverjum klúbbum í Hamborg en hlustar aðallega á "Black Music like R 'n' B" eins og hann orðaði það í póstinum.

En þetta er þá örugglega bara nettur gaur og hlakka ég til að sjá kvikyndið, ég ákvað að setja tengil inn á síðuna hans, en tengillinn er í "afþreying"

Ætti ég að segja honum að árið sem hann fæddist (1986) hafi Tyrkir ekki lengur verið réttdræpir á Íslandi?
Hvað finnst ykkur?

Kristján Ó.
-auf Wiedersehen!


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 20:00:05 / kristjano

8 liða úrslit

Í dag var keppni bekkjar míns í Bekeví. Við öttum kappi við lið 4-Hog var það skipað Grími Liðstjóra, Jonna Frummælanda, Ása Meðmælanda og Þorsteini Stuðningsmanni. Umræðuefnið var "Guð er dauður" og mæltum við á móti. Keppnin var jöfn og spennandi og vil ég þakka liði 4-H fyrir góða keppni.

Lið 5-B var skipað eftirfarandi
Kristjáni Ó. - Liðsstjóra
Hörpu Sif - Frummælanda
Pétri Magnúsi - Meðmælandi
Hildi Guðnýju - Stuðningsmaður

Leikar fóru svoleiðis að lið 5-B bar sigurorð úr bítum með 37 stigum, en það eru einmitt fjöldi refsistiga sem við fengum í þessari keppni, hitt liðið fékk 19 refsistig.
Og ræðumaður "kvöldsins" var Hildur Guðný Káradóttir, stuðningsmaður andmælenda.

Þá er ekkert eftir nema 8 liða úrslit, undanúrslitin og svo úrslitin sjálf, sjáumst á næstu keppni 8)

Kristján Ó.
-Í 8 liða úrslitum


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 10:13:08 / kristjano

Smá pistill

Nennir einhver að lesa fyrir mig Sjálfstætt fólk? Ég nenni því nefnilega ekki sjálfiur 8|

Annars hef ég ekki mikið að segja, nema það að ég missi kannski af næstu umferð í Gettu betur og Morfís.

Svo fer að styttast í Ljósið maður, og vonandi verður Ljósið eins glæsilegast og á verður kosið, en við erum einimtt að reyna að gera þetta ógleymanlegt og einnig að gera næstu Ljóslifandi nefnd erfiðara fyrir, því það verður vonandi erfitt að toppa þetta.

Meira hef ég ekki að segja eins og er.

Friiiðuuur
Kristján Ó.


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 16:25:05 / kristjano

En skrýtið...

Ég var að kynna söngleikinn Á tjá og tundir áðan í Landakotsskóla. Sem er ekki frásögufærandi nema hvað að þegar við byrjuðum hélt ég að við þyrftum að ganga bekk úr bekk, eða allavega frá einum árgang í annan. Svo var ekki raunin, kennslustofan var svona hálffull og hefði ég geta trúað því að þetta væri einn bekkur, en það voru eitthvað um 20-30 krakkar í stofunni.
Svo þegar kynningin er að klárast segir kennarinn "jæja, eru 8. og 9. bekkur til í efnafræði?"
Þá spurði ég "er þetta öll unglingadeildin?" Allir svöruðu því játandi, en það eru 34 krakkar í unglingadeild Landakotsskóla, sem gera 11,33 krakka í hverjum árngangi, sem nær bara engri átt!!!

Kristján Ó.
-skil ekki svona fámenningu


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 18:01:52 / kristjano

Árshátíðarárstíð

Nemó var í gær og verð ég að ssegja að ég skemmti mér bara mjög vel allan daginn, sýningin skemmtileg og ballið líka.

Dagurinn byrjaði samt þannig að bekkurinn hittist í brunchi heim hjá Gunnari. Áætlaður tími til að byrja þetta var klukkan 11. Við strákarnir ætluðum samt að koma aðeins fyrr, eða um 10, og hafa smá strákamorgunn.
Það gekk ekki eftir, við vorum 5 strákarnir af 8 sem mættum þarna rétt fyrir 12. Enda mikið að gera, sækja þennan, ná í bakarísmatinn og svo framvegis.

Svo var farið á sýninguna. Sem allir höfðu gaman af held ég, þrátt fyrir hæsi Bjarkar Bryngeirsdóttur, sem virtist hafa tekið vel á því í drykkjunni kvöldið áður, en það eru óstaðfestar fregnir.Svo að sjálfsögðu að sjá Emmý Ott dilla sér þarna á sviðinu.

Klukkan 19:00 var planað að mæta í matinn, vildum byrja að borða ekki seinna en 19:30. Ég, Orri og Pétur mættum þangað 19:35 eða svo, og ekki gátu allir séð sér fært í matinn vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Eftir matinn var haldið upp í breiðholtið, þar sem Ásdís Auðunsdóttir, samt ekki veðurfræðingurinn, hélt partý. Partýið var skemmtilegt en sjokkerandi!
Eða allavega svona semi-sjokkerandi vegna yfirliðs einnar stelpu. En hún náði sér fljótt aftur og allir héldu áfram að skemmta sér.

Svo kom ballið, ég skemmti mér vel.

Og í kvöld er ársátíð Karatedeildar Hauka, sem varð 16 ára 1. febrúar s.l. Það verður vonandi mikið fjör, ef svo er ekki þá kem ég bara fjörinu í gang 8)

Kristján Ó.
-alltaf á árshátíð


» 1 hafa sagt sína skoðun