|
|
27.03.2006 16:33:14 / kristjano
Um nýliðna helgi var ég í Svíaríki að keppa í karate á Sverige
Katapokalen mótinu. Sem mætti þýða á íslensku "Sænska meistaramótið
í kata." Mér fannst ég ver að gera góða hluti þarna, en það er oft
ekki nóg, sérstaklega ekki á svona sterku móti, þannig að ég komst
ekki áfram í neinum af þremur flokkunum sem ég keppti í.
Annars var þetta vel heppnuð ferð í alla staði og skemmtilegur
hópur sem fór út og ég vona að það verði farið út aftur eftir
smástund.
En að öðru, fyrsti dagur kosningavikunnar var í dag og er hið
árlega KOX þorp risið á marmaranum og eru þetta allt flottir básar
og metfjöldi í framboði, að ég held.
Meira var það ekki að þessu sinni,
Kristján Ó.
»
19.03.2006 14:05:47 / kristjano
Er ég gannibarn?
Þessari spurnignu hef ég velt mikið fyrir mér frá því á
föstudaginn. En þannig er mál með vexti að ég fór með mömmu minni í
heimsókn til ömmu minnar, sú gamla fór aldeilis á kostum og fengu
mörg gullkornin að njóta sín.
En mamma sagði henni að hún væri að fara í leikhús með vinkonu
sinni og ætlaði að taka mig með sér. Þá segir sú gamla: "Já, Helga,
hún er búin að eignast gannibarn." Mér og mömmu fannst þetta
óneitanlega mjög fyndið og þá spurði mamma "Er Kristján þá líka
svona gannibarn?" Og hvað haldiði að sú gamla hafi sagt? "Já, er
það ekki?" Eftir þetta gat ég varla staðið vegna hláturs og sömu
sögu er að segja af henni móður minni. Sem spurði svo í framhaldi
af þessu "Er ég þá alvörubarn?" Amma var ekki lengi að svara og
sagði "Já, þú ert svona alvörubarn."
Þetta fannst mér ógeðslega fyndið og segir þetta mér að ég verð
að fara oftar í heimsók til ömmu minnar.
Kristján Ó.
-Gannibarn?
»
15.03.2006 18:58:44 / kristjano
Eftir æsispennandi Bekeví keppni milli 4-R og 4-X ákvað ég að
kíkja í Kringluna og fá mér smávegis í gogginn. Þegar ég var búinn
að borða ákvað ég að nú væri best að halda heim á leið. Þegar ég er
í snúningshurðinni á leiðinni út heyri ég einhvern svakalegan
hávaða, um leið og ég kem út sé ég hvað meinið er. Það er einhver
gaur sem heldur örugglega að hann sé geðveikt töff, sem situr úr
bíl félaga síns, býst ég við þar sem töffarinn var í farþegasætinu,
með sígó í munninum, samt ekki MC Sígó 
Þetta fannst mér ógeðslega fyndið en um leið mjög sorglegt, ekki
bara vegna þess hversu asnalegt þetta er, heldur er ekki mikið um
gellur í kringlunni á þessum tíma, ekki nema að þær séu að vinna í
búðunum þarna og þá eru þær ekki beint að fara hlaupa í hundana.
Heldur er meirihlutinn þarna KONUR sem líta ekki við svona
gúmmítöffurum.
Rétti tíminn til að gera þetta er í hádeginu, ég hélt að allir
vissu það 
Kristján Ó.
»
13.03.2006 21:54:21 / kristjano
Svo virðist vera að lagið Syndrommið með stórhljómsveitinni Upp
Á Kant hafi lekið á netið seint í gærkvöldi eða snemma í morgun.
Talið er að fyrrum upptökustjóri sveitarinnar hafi lekið laginu á
netið, en hann var rekinn fyrir illa unnin störf og fenginn nýr og
betri maður í verkið.
Aðspurðir sögðust Magnús Berg og Karl Eiríksson vera alveg miður
sín með að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir lekann, en það
sem þeir óttast mest er lögsókn frá Kristjáni Hreinssyni sem á það
til að kæra öll lög sem leka á netið nú á dögum.

Hér er Kristján að væla í samkeppnisstofnun vegna leka
lagsins.
Lagið, Syndrommið, er hægt að nálgast á Kantinum ásamt
slagaranum síðan í fyrra Pepsívængir.
http://kanturinn.com/?hk=11&sida=12
Kristján Ó.
»
11.03.2006 20:06:23 / kristjano
Ég og Pétur Magnús fórum á Aktu-taktu í dag. Við vorum pínu
svangir, svo við ætluðum að fá okkkur pylsu.
Ég var á undan í röðinni og var ég aðeins að fíflast í
afgreiðslustelpunni, en samtalið var s.s. eitthvað á þessa
leið;
A: Get ég aðstoðað
Ég: Ég ætla að fá eina pylsu hjá þér
A: Já OK
Ég: Svo ætla ég líka að fá kók
A: Með hverju?
Ég: Ha? Nei, ég ætla bara að fá venjulega kók 
A: Nei, með hverju á pylsan þín að vera?
Þetta var gaman og ef tækifæri gefst á því að snúa út úr svona
afgreiðslufólki endilega nýtið ykkur það til hin ýtrasta!
Kristján Ó.
»
11.03.2006 00:20:02 / kristjano
Núna eru rúmar 2 vikur í kosningar til stjórnar NFVÍ og er
kominn einhver kosningafirðingur í fólk.
Þeir sem hafa látið það eftir sér að þeir ætli í stjórn eru
eftirfarandi:
- Forseti: Elín Edda Angantýsdóttir, Vilmundur Sveinsson &
Haukur Harðarson
- Féhirðir: Gauti Rafn Ólafsson, Anna Kristín Pálsdóttir &
Jóhanna Margrét Gísladóttir
- Íþró: Ég (Kristján Ó. Davíðsson) & Magnús
Sigurbjörnsson
- Skemmtó: Svavar Þórólfsson
- Ritstjórn Verzlunarskólablaðsins: Ólöf Rut Stefánsdóttir &
Nanna Kristín Tryggvadóttir
- Ritstjórn Viljans: Sylvía Rut Sigurjónsdóttir
- Listó: Helga Lóa Kristjánsdóttir
- Nemó: Pétur Björgvin Sveinsson & Eva Halldóra
Guðmundsdóttir
- Málfó: Pétur Magnús Birgisson
Ég held að ég sé ekki að fara með rengt mál með þessum
einstaklingum hér að ofan, en þetta er ekki endanlegur listi
frambjóðenda, einungis drög að því hverjir færu í hvað.

Góðar stundir,
Kristján Ó.
»
09.03.2006 17:22:05 / kristjano
Í kvöld er keppni Verzlunarskólans í 8 liða úrslitum í Gettu
betur á móti FSU. Keppnin byrjar klukkan 20:10 og hvet ég alla til
að mæta og styðja lið Verzló til sigurs. Eða eins og Tommi Bergs
sagði, þeir sem mæta ekki á keppnina í kvöld þurfa ekki að mæta
aftur í skólann!
Þjóðþekktur einstaklingur verður fenginn til að stjórna
klappliðini, svo hvíslaði lítill ormur því að mér að Slangan væri
komin á kreik á nýjan leik. Þetta rímaði óvart.
Allir þeir sem mæti eiga að öskra eins og þeir væru að fara í
munnlegt dönskupróf á morgun, það fara því allir raddlausir af
fiskislóðinni í kvöld!
Sjáumst á Granda í kvöld,
Kristján Ó.
»
07.03.2006 16:20:51 / kristjano
Hefur þú unnið á póstinum?
Ef svo er, féxt þú þá sent bréf heim til þín frá kjörstjórn
Póstmannafélags Íslands vegna kosninga til stjórnar og trúnaðarráðs
félagsins í mars 2006?
Ég vann á póstinum í viku um síðustu jól, og finnst mér þá
fullmikils til ætlast af mér ef ég á bara að kjósa eitthvað
fólk.
Þetta finnst mér skrítið!
Ég vil minna fólk á að enn eru til miðar á Ljósið og hvet ég
alla, og þá meina ég ALLA, til að fara á þetta því það fer engin
ósáttur úr Borgarleikhúsinu.
Meira var það ekki, blelli
Krilli
»
05.03.2006 18:52:53 / kristjano
Snemma í morgun yfirgáfu Þjóðverjarnir landið og tóku þau þá
rútuna frá BSÍ út á flugvöll klukkan 5:45 og voru allir mættir
eldhressir þangað.
Annars í dag var Unglingamestaramót í Kata, sem er sem sagt
karatemót, og var það haldið í Smáranum í Kópavogi.
Ég er nokkuð ánægður með árangur minn á þessu móti, en ég fékk
brons í einstaklings kata, þar sem einn er á gólfinu og gerir í
einu. Svo var það hópkata þar sem þrír eru að gera það sama og
snýst það mikið um samhæfingu, það hefði ekki getað gengið betur,
allavega ekki miðað við hvað við höfum æft lítið, en ég, ásamt
tveimur öðrum karategæjum, nældum okkur í gullpening.
Eftir verðlaunaafhendinguna var maður orðinn eins og einhver
rappari með fullt af blingi og það klingdi vel í því.
Kristján Ó.
-BronsGull Maðurinn
»
04.03.2006 18:32:05 / kristjano
Já, eins og fyrirsögnin segir þá ætla ég að taka mig á í
blogginu núna, það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér
undanfarið. Undirbúningur fyrir Ljósið og þýski múslima Tyrkinn
minn er ennþá hérna, en hann fer bókstaflega fyrir allar aldir í
fyrramálið, á s.s. að vera mættur á BSÍ klukkan 5:30, og nú vil ég
gerast svo kræfur að vitna í eina af merkustu manneskjum
samfélagsins og segja: "HVAÐ ER SLÍKT!?"
En eins og sagði hérna áðan þá er allt búið að vera á fullu
fyrir Ljósið sem verður haldið hátíðlegt næsta miðvikudag í
borgarleikhúsinu. Miðaverðið er 1000 krónur. Ykkur kann að finnast
það mikið, en miðað við það að þið eruð að fá 10 Verzlískar
stuttmyndir ásamt veitingum frá Vífilfelli og Maarud, þá er þetta
engin peningur.
Verzlunarskólablaðið V72 kom út í gær við mikinn fögnuð allra
Verzlinga og velunnara þeirra. Blaðið er hreint út sagt glæsilegt
og ef ég væri með hatt myndi ég taka að ofan fyrir ritnefndinni. En
þau stóðu sig öll eins og hetjur.
Útgáfupartýið var svo haldið á Pravda og skemmti ég með nokkuð
vel þar. Þar voru allir þessu helstu mættir og skáluðu.
Svo var eigandi staðarins bara mjög almennilegur við okkur sem
vorum að sötra okkar eigin veigar þarna í anddyrinu. Góður plús
fyrir Pravda.
Eftir þetta fór ég á Prikið og sá þar mann laminn í andlitið með
stól af einum mjög svo pirraðum náunga, það var gaman 
En í kvöld er síðasta kvöld þjóðverjanna hérna og er ég búinn að
gefa mínum Brennivínsbol að gjöf og með bolnum fylgdi lítil
brennivínsflaska.
Látum þetta gott heita í bili.
Kristján Ó.
»
02.03.2006 01:33:52 / kristjano
Bloggleysi mitt undanfarna daga á sér mæta góða útskýringu,
þannig er mál með vexti að tölvan mín var orðin eitthvað slöpp
þannig að ég ákvað að senda hana í meðferð og leyfa greyið tölvunni
að safna kröftum fyrir komandi átök.
Annars er allt gott að frétta af mér og tyrkneska Þjóðverjanum
mínum sem ég held að sé múslimi 
Svo eru 8 liða úrslit Bekeví á morgun/eftir og vil ég fá alla
til að mæta og styðja við bakið á liði 5-B.
Umræðuefnið er Sannleikurinn er sagna bestur og mæli 5-B með en
5-Y á móti.
Keppnin byrjar klukkan 16:00 í græna sal.
Kristján Ó.
-sjáumst í græna sal
»
|
|